2

Main content

×

Villuboð

Notice: Undefined offset: 1 in theme_print_url_list() (line 357 of /var/www/html/gitlab-513242-c27d1dad598abcb21f5909678c4b96060a6fb482/sites/all/modules/contrib/print/print.pages.inc).

main

Nýr starfsmaður hjá Landskerfi

Bríet Pálsdóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Landskerfinu. Áður starfaði hún í 14 ár hjá Advania, sem ráðgjafi og verkefnastjóri í veflausnum og síðar sem deildarstjóri vefverslana.  Á árunum 2005 til 2007 starfaði Bríet við skjalastjórnun hjá Kópavogsbæ og Intrum á Íslandi. Bríet er með BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. 

Landskerfið mun njóta góðs af umfangsmikilli þekkingu Bríetar á vefmálum við innleiðingu nýs bókasafnskerfis þar sem hún mun stýra uppsetningu nýs viðmóts almennings fyrir leitir.is (Primo VE) og samþættingu þess við nýja bókasafnskerfið (Alma) og önnur kerfi.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block