Main content
main
Sarpur.is
29.09.2015
Sarpur.is er ytri gátt skráningar- og upplýsingakerfisins Sarpur. Þar gefst almeinningi kostur á að leita í safneignum þeirra rúmlega 50 safna sem eru nú aðilar að kerfinu.
Meirihluta þeirra gagna sem er skráður í Sarp er að finna á ytri vefnum og geta notendur sent inn ábendingar um aðföng, t.d. nöfn fólks á myndum, hvernig gamlir munir voru nýttir áður fyrr og ýmislegt fleira.
Notendum gefst einnig kostur á að panta myndir í gegnum kerfið, hvort sem er til einkanota eða til birtingar. Um birtingu er samið við það safn sem varðveitir tiltekið aðfang.
Hér er að finna stutt leiðbeiningar- og kynningarmyndbönd um sarpur.is
horizontal
print-links
