Main content
main
Skráningarþjónusta Landsbókasafns
17.03.2017
Á fræðslufundi skrásetjara sem haldinn var 17. mars 2017, kom fram að Landsbókasafn hefur hrint af stað nýrri þjónustu. Hún felst í því að safnið tekur að sér að skrá safnkost fyrir smærri söfn þar sem aðföng eru lítil. Lengi hefur verið kallað eftir slíkri þjónustu og því er þetta fagnaðarefni. Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu safnsins.