Main content
main
![Panell. Setið fyrir svörum Panell. Setið fyrir svörum](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/img_9733.jpg?itok=8OgaCZsN)
Nýtt bókasafnskerfi. Kynning á vinnu sérfræðingahópa
23.11.2017
Þriðjudaginn 21. nóvember sl. hélt Landskerfi bókasafna kynningar- og samráðsfund með forstöðumönnum bókasafna og stjórn Aleflis í Norræna húsinu í Reykjavík. Fundurinn var haldinn til þess að kynna þeim niðurstöður sérfræðihópa vegna þarfalýsingar fyrir val á nýju bókasafnskerfi.
Fundinn sóttu um 40 manns og aðrir 40 fylgdust með fundinum í beinni streymissútsendingu. Líflegar umræður urðu meðal fundarmanna eftir skýrslur hópanna.
Lokaskýrslu sérfræðihópanna, glærur og myndir frá fundinum má finna á Kerfin >>Nýtt bókasafnskerfi >>Sérfræðihópar
Þá má nálgast upptöku frá fundinum á Kerfin >>Nýtt bókasafnskerfi >>Útsending frá fundi
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)