Main content
main
Rafbókasafnið
02.11.2016
Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna hf og Borgarbókasafns Reykjavíkur. Markmið verkefnisins er að bjóða almenningi upp á aðgang að fjölbreyttu úrvali raf- og hljóðbóka. Nú er Rafbókasafnið aðgengilegt lánþegum nær allra almenningsbókasafna á Íslandi eða 62 söfnum. Flestar bækurnar eru á ensku en ráðgert er að í framtíðinni verði einnig hægt að fá íslenskt efni lánað í Rafbókasafninu.
Rafbókasafnið er að finna á vefslóðinni http://rafbokasafnid.is eða http://rafbókasafnið.is. Rafbókasafnið byggir á OverDrive rafbókaveitunni sem býður bókasöfnum um allan heim samskonar þjónustu.
Almenningsbókasöfnin í Rafbókasafninu (desember 2017)
Hjálp á íslensku
- Fyrsta hjálp um Rafbókasafnið, öppin og tækin hjá Borgarbókasafninu
- Leiðbeiningasíður nokkurra aðildarsafna
- Leiðbeiningar á vef Landskerfis bókasafna
Hjálp á ensku