Main content
Fréttir
main
Ytri vefur Sarps, http://www.sarpur.is var opnaður við hátíðlega athöfn í Farskóla FÍSOS í Þjóðmenningarhúsi í dag 25. september. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra opnaði vefinn með aðstoð Sigurðar Trausta Traustasonar fagstjóra Sarps.
Nýr fagstjóri Sarps, Sigurður Trausti Traustason hefur hafið störf.
Sigurður er með M.A. í safnafræði frá University of Leicester. Lokaritgerð hans frá skólanum bar heitið Contemporary Collecting in Iceland og við vinnslu hennar tók hann m.a viðtöl við fjölmarga safnmenn um Sarp og möguleika hans. Sigurður er jafnfram með B.A gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og A.P Diplóma í Margmiðlunarhönnun frá Kobenhavns Tekniske Skole.
Sigurður hefur starfsstöð hjá Landskerfi bókasafna hf á grunni þjónustusamnings félagsins við...
Landskerfi bókasafna hefur sett sér samgöngustefnu og er markmið með henni að hvetja starfsfólk félagsins til að nota vistvænan og hagkvæman ferðamáta. Landskerfið gerir samgöngusamning við þá starfsmenn sem nota vistvænan samgöngumáta.
Skólaárið 2013 – 2014 verður starfsfólki aðildarsafna Gegnis boðið upp á kynningar og námskeið, sjá námskeiðsáætlun ásamt lýsingum á námskeiðum. Einnig verður boðið upp á ítarnámskeið fyrir vana starfsmenn sem núna kallast „Leitir opna dyr“. Eins og nafn námskeiðsins ber með sér verður megin áherslan á leitir.is og þá sérstaklega aðgengi að rafrænu efni.
Hægt er að skrá sig á námskeiðin á vef Landskerfis bókasafna, Fræðsla - Skráning
Nú standa fyrir dyrum breytingar á umsýslu lykilorða til innskráningar á vefina gegnir.is og leitir.is. Ekki verður lengur hægt að styðja lykilorð sem innihalda kennitölu notanda, hluta úr henni eða einfaldar talnarunur á borð við 1234. Breytingarnar eru gerðar til að reyna að tryggja öryggi persónuupplýsinga lánþega.
Kerfisvinnu við leitir.is er nú lokið og vefurinn hefur verið opnaður á ný.
Vegna kerfisvinnu verður vefurinn leitir.is lokaður hluta úr degi miðvikudaginn 10. júlí. Kerfið verður tekið niður um kl. 9 að morgni og má gera ráð fyrir að uppfærslu ljúki og vefurinn verði opnaður aftur um eða eftir miðjan daginn.
Sett hefur verið frétt um lokunina á forsíðu leitir.is.
Á meðan á kerfisvinnunni stendur bendum við ykkur á að nota gegnir.is og hvar.is.

Fundargerð Skráningaráðs Gegnis frá 72. fundi ráðsins sem haldinn var 8.maí síðastliðinn er nú aðgengileg á síðu Skráningarráðs.
Landskerfi bókasafna hf. (LB) og Rekstrarfélag Sarps (RS) hafa gengið frá þjónustusamningi sem gildir til tveggja ára frá og með 1. september næstkomandi.
Á grunni samstarfsins tekur LB að sér umsjón með daglegum rekstri RS og fagstjóri Sarps tekur til starfa með aðstöðu í húsakynnum LB.
Markmið samstarfsins er að ná fram:
• | auknu gæðaeftirliti með skráningu í Sarp, |
• | öflugri notendaþjónustu fyrir Sarp, |