2

Main content

Fréttir

main

Rafgagnahópi sem ætlað er að móta framtíðarsýn varðandi aðgengi að rafrænum tímaritum og bókum úr leitir.is hélt fyrsta fund sinn 29. maí.

Hægt er að fylgjast með vinnu hópsins á vefsíðu Rafgagnahóps. Þar verða vistaðar fundargerðir og vinnugögn hópsins.

Hægt er að koma ábendingum til hópsins með því að senda tölvupóst á Rafgagnahopur hjá landskerfi.is.

Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var 24. maí síðastliðinn voru kynntar breytingar á meðhöndlun kennitalna í Gegni, sjá glærur.

Breytingarnar varða úthlutun notandanafna og lykilorða til lánþega vegna innskráningar á leitir.is og gegnir.is. Breytingarnar eru gerðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga lánþega.

Helstu atriði eru:

...
Lánþegar ættu helst ekki að nota kennitölu sem notandanafn við innskráningu á vefi
Skylt

Fundargerð Skráningaráðs Gegnis frá 71. fundi ráðsins sem haldinn var 12.desember síðastliðinn er nú aðgengileg á síðu skráningarráðs.

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 24. maí 2013. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 9 hluthafa sem eiga samanlagt 84,14% hlutafjár í félaginu.

Hér má nálgast skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár og fundargerð aðalfundar.

Heimilisfang Landskerfis bókasafna er nú Katrínartún 2 (áður Höfðatún 2).

Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Starfsárið...

Skipað hefur verið í Rafgagnahóp sem hefur það hlutverk að móta framtíðarsýn varðandi aðgengi að rafrænum safnkosti. Í hópnum sitja Anna Sveinsdóttir, Birgir Björnsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Kristína Benedikts, Margrét Ásgeirsdóttir og Þóra Gylfadóttir auk starfsmanns Landskerfis bókasafna. Hópurinn verður kallaður saman til fyrsta fundar á næstu vikum.

Notendaráðstefna Aleflis 2013 verður haldin í fyrirlestarsal Landsbókasafns 24. maí kl 10 -12.

Vegna viðhaldsvinnu verður vefurinn leitir.is óaðgengilegur í um klukkustund á tímabilinu 22:00-24:00 í kvöld, 10. maí. Hægt verður að nota gegnir.is og hvar.is á meðan.

Vegna kerfisvinnu var Gegnir lokaður fimmtudaginn 25. apríl. Það var verið að endurlykla eða „indexera“ bókfræðigrunn Gegnis.

Breytingar í lyklun lúta fyrst og fremst að bættri leit í númerasviðum eins og ISSN, ISBN og öðrum minna notuðum númerasviðum. Einnig var tekið á ýmsum atriðum sem nýtast vel fyrir gæðastýringu á gögnunum.