Main content
Fréttir
main
Gjaldskrá Landskerfis bókasafna fyrir árið 2014 er nú aðgengileg hér á síðunni. Í ljósi góðrar afkomu hefur verið ákveðið að veita 3,5% afslátt af einingarverðum á árinu 2014.
Reykhólahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður eru nýir hluthafar í Landskerfi bókasafna hf. og eru þeir boðnir velkomnir í félagið.
Starfsmenn Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélags Sarps óska samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þakka ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Vegna kerfisvinnu verður Gegnir tímabundið lokaður 17. desember nk.
Lokunin hefur...
Í haust gaf Landskerfi bókasafna út leiðbeiningabækling um leitir.is á íslensku og dreifði honum til aðildarsafna Gegnis. Leiðbeiningarnar hafa nú verið þýddar á ensku og pólsku. Þýðingarnar eru aðeins til á rafrænu formi.
Í gærdag fengum við góða gesti frá Kaliningrad. Þau komu á skrifstofu Landskerfisins til að fræðast um Gegni og samstarfið í kringum hann. Ragna Steinarsdóttir frá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni, Sigrún Hauksdóttir, Sveinbjörg Sveinsdóttir og Telma Rós Sigfúsdóttir frá Landskerfinu tóku á móti gestunum og kynntu þeim starfið. Þess má geta að nokkrir gestanna voru að koma í sína aðra heimsókn til Landskerfis bókasafna.

Gengið hefur verið frá skipan í skráningarráð Gegnis fyrir starfsárið 2013-2014. Eftirtaldar taka setu í ráðinu: Áslaug Þorfinnsdóttir starfsmaður Bókasafns Hafnarfjarðar, Rósa S. Jónsdóttir forstöðumaður bókasafns Orkustofnunar, Sigrún Jóna Marelsdóttir frá Landsbókasafni - Háskólabókasafni auk Þóru Sigurbjörnsdóttir frá Borgarbókasafni.
Í dag fengum við góða gesti frá Vilníus. Allt fólk frá bókasöfnum sem er hér á landi í námsferð (Nordic-Baltic Mobility Program 2013). Guðríður Sigurbjörnsdóttir á Borgarbókasafni leiddi hópinn.