2

Main content

Fréttir

main

Landskerfi bókasafna hf. hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf og Öryrkjabandalaginu um að www.gegnir.is standist vottun fyrir forgang 2 um aðgengi fyrir fatlaða. Þetta er í samræmi við stefnu stjórnvalda um opinbera vefi og aðgengisstefnu okkar vegna gegnir.is.
 

Fundargerðir Skráningarráðs eru birtar á vef ráðsins, sem er staðsettur vinstra megin á heimasíðu Landskerfisins. Síðasti fundur ráðsins, sá fertugasti og fyrsti, var haldinn um miðjan októbermánuð.

Landskerfi bókasafna auglýsir eftir kerfisbókaverði til afleysinga á árinu 2009.

Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Hagvangs.

Umsóknarfrestur um starfið er til og með 30. nóvember næstkomandi.

Glærur frá fræðslufundi skrásetjara, sem haldinn var 9. október síðastliðinn hafa verið settar á vef Skráningarráðs

Á landsfundi Upplýsingar 10. - 11. október 2008, kynnti framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna til sögunnar verkefni sem félagið er að hrinda af stokkunum í samvinnu við Landsbókasafn-Háskólabókasafn, Borgarbókasafn Reykjavíkur, aðildarsöfn Gegnis auk erlendra aðila.

Hér er að finna kynninguna frá Landsfundinum Þarfagreining - „Integrated Search System for Iceland“

 

Landskerfi bókasafna býður skólabókavörðum upp á þá þjónustu að mynda lánþegaréttindi vélrænt í kerfinu fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Einnig er hægt að uppfæra bekkjarupplýsingar. Nánari leiðbeiningar er að finna á þjónustuvef.

Útbúinn hefur verið nýr leiðbeiningabæklingur fyrir gegnir.is. Bæklingurinn tekur mið af breytingum sem urðu þegar ný útgáfa af vefnum var tekinn í notkun um miðjan júnímánuð. Bæklingnum verður dreift til aðildarsafna Gegnis í byrjun ágúst. Nánar verður gert grein fyrir málinu í tölvuskeyti sem sent verður á póstlista Landskerfisins.

Leitarvefurinn gegnir.is er nú kominn með vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. um að gegnir.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Um er að ræða vottun fyrir forgang 1. Vottunin gildir bæði fyrir íslenska og enska hluta vefsins.

Nánar um aðgengisstefnu vegna gegnir.is.

 

Notendahandbók Gegnis á ensku fyrir útgáfu 18 (Aleph Staff User Guide 18.01) hefur nú verið gerð aðgengileg á Þjónustuvef Landskerfis bókasafna.

Annars vegar er hægt að skoða einstaka kafla notendahandbókarinnar, og hins vegar bókina í heild sinni (athugið að bókin í heild sinni telur tæpar eitt þúsund blaðsíður!).