Main content
Fréttir
main
Fundargerð frá 37. fundi skráningarráðs hefur verið sett á síðu skráningarráðs.
Einnig er þar að finna glærur frá fræðsludögum skrásetjara 18. apríl síðastliðinn.
Skráningarráð stóð fyrir fræðsludögum skrásetjara 18. apríl síðastliðinn. Meðal umfjöllunarefni var heiti stofnana í nafnmyndaskrá Gegnis. Erindin frá fræðsludögunum er að finna á síðu skráningarráðs á vef Landskerfis bókasafna.
Alefli, notendafélag Gegnis, stendur fyrir notendaráðstefnu miðvikudaginn 14. maí kl. 13:00-16:00, í fundarsal Þjóðarbókhlöðu.
Ráðstefnan er ókeypis og opin öllum notendum Gegnis og öðrum áhugasömum.
Þriðja fundargerð verkefnahóps um uppfærslu á Gegni úr útgáfu 16 í útgáfu 18 hefur nú verið sett á vefinn. Sjá Útgáfa 18.
Aðalverkefnin þetta misserið eru uppfærsla af Aleph kerfinu í útgáfu 18 og endurgerð á gegnir.is. Báðum verkefnum miðar vel áfram. Gegnir.is er viðamikið verkefni sem mun ekki ljúka við opnun leitarvefsins í júní heldur munu endurbætur og endurskoðun á vefnum verða fastur liður á verkefnalista Landskerfis bókasafna.
Útgáfa 18 - Uppfærslan í útgáfu 18 er á áætlun. Búið er að setja útgáfu 18 upp í prófunarumhverfinu ásamt því að aðlaga gögnin að þessari nýju útgáfu. Þessa dagana er verið að samræma stýritöflur, þýða villuboð,...
Fundargerð frá 36. fundi skráningarráðs hefur verið sett á síðu skráningarráðs.
Yfirlit helstu verkefna starfsársins 2008 er nú aðgengilegt á heimasíðunni undir krækjunni Verkefnalisti 2008. Í þessum lista koma ekki fyrir verkefni sem eru viðvarandi og falla undir rekstur Gegnis.
Fundargerðir verkefnahóps um uppfærslu á Gegni úr útgáfu 16 í útgáfu 18 eru nú aðgengilegar til vinstri á heimasíðunni undir flipanum Útgáfa 18.
Á árinu 2007 tók Landskerfi bókasafna ákvörðun um að setja sérstakt erindisbréf um starfsemi Efnisorðaráðs. Til samræmis við þá ákvörðun hefur ráðið nú fengið eigin vefsíðu á heimasíðu Landskerfisins. Á síðunni eru nú m.a. birtar fundargerðir ráðsins auk kerfisbundins efnisorðalykils. Vefsíða ráðsins er aðgengileg frá flipanum Efnisorðaráð undir yfirheitinu Um Gegni.