Main content
main
Að búa til verkbeiðni
04.05.2016
Þegar þú hefur stofnað aðgang að þjónustuvefnum og skráir þig inn á hann lendir þú á Mínar síður sem við köllum líka stjórnborð. Smelltu þar á Ný verkbeiðni.
![Að búa til verkbeiðni frá stjórnborði Að búa til verkbeiðni frá stjórnborði](https://landskerfi.is/sites/default/files/bua_til_verkbeidni.jpg)
Þá opnast síða þar sem þú færir inn allt það sem þú vilt koma á framfæri í verkbeiðninni:
- Titill * er heitið á verkbeiðni og er skyldusvið
- Í Efni *, sem einnig er skyldusvið skrifar þú erindi þitt og lýsir vandamálinu
- Þú getur sent okkur fylgiskjal í viðhengi, til dæmis skjáskot. Skoðaðu hvaða skráarsnið eru leyfð og hversu stórt fylgiskjal má vera. Þú getur sent okkur fleiri en eitt fylgiskjal
- Kerfi * er skyldusvið. Þú þarft að segja okkur hverju erindi þitt tengist
- Þegar allt þetta hefur verið skráð smellir þú á Senda
![Ný verkbeiðni - form Ný verkbeiðni - form](https://landskerfi.is/sites/default/files/myndir/verkbeidni_-_form.png)
Þá fer verkbeiðnin þín inn í kerfið hjá okkur og við munum bregðast vð henni við fyrsta tækifæri.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)