2

Main content

main

Prentun lánþegaskírteina

Stillingar fyrir prentun

Setja þarf inn stillingar í tvær biðlaraskrár á útlánatölvum sem tengjast skírteinaprentara/miðaprentara: ALEPHCOM.INI og /CIRC/../PRINT.INI. 

  • Biðlarinn má ekki vera opinn í tölvunni meðan stillingum er breytt.
  • Það þarf ekki administrator-réttindi til að gera breytingarnar.
  • Opnið skrárnar í Notepad og vistið að loknum breytingum.

ATH - sumar tölvur eru stilltar á að sýna ekki endingu skrárheita og þá birtast heiti skránna sem ALEPHCOM og PRINT.
 

Skráin Alephcom.ini

1.  C:/AL500/ALEPHCOM/TAB/ALEPHCOM.INI

A. Stilla DefaultPrintConfig=0 (breyta ef það er =1):

[Print]
SaveHistoryNumberOfDays=31
DefaultPrintConfig=0
TempDir=c:\temp\Aleph
TempFileCounter=1063
NewPrintType=Y


B. Setja inn heiti miðaprentarans í PrinterDeviceList

[PrinterDeviceList]
; Til að skilgreina prentara, aðra en sjálfgefinn prentara.
; Heiti prentara sést í prentaraglugga tölvu undir Control Panel->Printers
; Dæmi: Device01=Bokamidar  Device02=Kvittanir
Device01=
Device02=
Device03=
Device04=
Device05=

Passa að ekki sé bil á milli jafnaðarmerkisins = og prentaraheitis.

Nauðsynlegt er að heiti prentarans sé sett stafrétt inn í PrinterDeviceList, þ.e. stórir stafir og bil skipta máli.
Rétt heiti prentarans sést í prentaraglugga tölvunnar (t.d. Bokamidar eða tegundarheiti, s.s. Zebra ZT220).

Prentaraglugginn er opnaður úr START-hnappi tölvunnar (Start -->Devices and Printers eða Start -->Control Panel -->Devices and Printers).

Devices and printers

 

Skráin Print.ini í \Circ\tab

2.  C:/AL500/CIRC/TAB/PRINT.INI

  • Línan fyrir lánþegaskírteini heitir BorLetterCARD: skilgreina format |20| fyrir form skírteinis (dálkur 2).
  • Skírteininu er beint á skírteinaprentarann með DEVICE-01 (eða DEVICE-02 ef t.d. kvittanaprentari hefur áður verið skilgreindur sem DEVICE-01 í viðkomandi tölvu).   

ATH Það verður að skrifa DEVICE-01 með stórum stöfum og passa að það lendi nákvæmlega í dálki 6.1 í skránni.  Ef það lendir einu bili of langt til vinstri eða hægri þá finnur kerfið ekki prentarann.

  • Í skránni eru fleiri línur en aðeins þarf að breyta einni línu til að skilgreina prentun lánþegaskírteina. Í dæminu hér fyrir neðan táknar [.....] línur fyrir ofan/neðan sem ekki má breyta.
  • Ekki má nota TAB-hnapp við að færa bendil í línu. Notið bilslá (space bar).

 

!       1                                2  3 4      5            6.1
!---------------------------------------+--+-+-+------------+----------
[.....]
BorLetterCARD                            20 N P brltrCRD.prn DEVICE-01
[.....]