2

Main content

main

Prentun útlánayfirlits

Stillingar fyrir prentun útlánayfirlits

Yfirlit yfir útlánastöðu einstakra lánþega er hægt að prenta út úr víðværum lánþegaupplýsingum í Útlánaþætti. 
Smellt er á hnappinn |Prenta tilk.|  (hægra megin í glugga) og valið LIST  Yfirlit útlánastöðu -->  Prenta .

  • Ef prenta á útlánayfirlit á sjálfgefinn A4-prentara þá þarf aðeins að setja inn stillingu í eina biðlaraskrá (C:AL500/CIRC/TAB/PRINT.INI) => fara beint í lið 2 í leiðbeiningum.
  • Ef prenta á útlánayfirlit á kvittanaprentara þarf að setja inn stillingar í tvær biðlaraskrár (C:AL500/ALEPHCOM/TAB/ALEPHCOM.INI og C:AL500/CIRC/TAB/PRINT.INI).

ATHsumar tölvur eru stilltar á að sýna ekki endingu skrárheita og þá birtast heiti skránna sem ALEPHCOM og PRINT.

  • Biðlarinn má ekki vera opinn í tölvunni meðan stillingum er breytt.
  • Það þarf ekki administrator-réttindi til að gera breytingarnar.
  • Opnið skrárnar í Notepad og vistið að loknum breytingum.

 

Skráin Alephcom.ini

1.  C:/AL500/ALEPHCOM/TAB/ALEPHCOM.INI

A. Stilla DefaultPrintConfig=0 (breyta ef það er =1):

[Print]
SaveHistoryNumberOfDays=31
DefaultPrintConfig=0
TempDir=c:\temp\Aleph
TempFileCounter=1063
NewPrintType=Y

B. Setja inn heiti kvittanaprentarans í  [PrinterDeviceList].

[PrinterDeviceList]
; Til að skilgreina prentara, aðra en sjálfgefinn prentara.
; Heiti prentara sést í prentaraglugga tölvu undir Control Panel->Printers
; Dæmi: Device01=Bokamidar  Device02=Kvittanir
Device01=
Device02=
Device03=
Device04=
Device05=

Passa að ekki sé bil á milli jafnaðarmerkisins = og prentaraheitis.
Nauðsynlegt er að heiti prentarans sé sett stafrétt inn í PrinterDeviceList, þ.e. stórir stafir og bil skipta máli.
Rétt heiti prentarans sést í prentaraglugga tölvunnar (t.d. Kvittanir eða tegundarheiti, s.s. Epson TM88).
Prentaraglugginn er opnaður úr START-hnappi tölvunnar (Start -->Devices and Printers eða Start -->Control Panel -->Devices and Printers).

Devices and printers

 

 

Skráin Print.ini í \Catalog\tab

2.  C:/AL500/CIRC/TAB/PRINT.INI

Í skránni eru rúmlega 40 línur fyrir ýmis útprent.  Línan fyrir útlánayfirlit heitir BorLetterLIST.

Þrír möguleikar eru í boði fyrir form útlánayfirlits, eftir því hvort á að prenta yfirlitið á venjulegan prentara (A4) eða á kvittanaprentara. Athugið þó að einstök bókasöfn gætu haft format með öðru númeri eftir nánara samkomulagi.

  • Form 01 = einfaldasta form fyrir A4 útprent.
  • Form 02 = eins og 01 nema athugasemd um útlán birtist líka.
  • Form 03 = fyrir kvittanaprentara.

Skilgreinið formatnúmer fyrir yfirlitið (dálkur 2). 
Ef form | 03| er valið þá þarf að beina útprentinu á kvittanaprentarann með DEVICE-01 í dálki 6.1 í skránni.

ATH Það verður að skrifa DEVICE-01 með stórum stöfum og passa að það lendi nákvæmlega í dálki 6.1 í skránni. 
Ef það lendir einu bili of langt til vinstri eða hægri þá finnur kerfið ekki prentarann.

  • Í skránni eru fleiri línur en aðeins þarf að breyta einni línu til að skilgreina prentun útlánayfirlits. Í dæminu hér fyrir neðan táknar [.....] línur fyrir ofan/neðan sem ekki má breyta.
  • Ekki má nota TAB-hnapp við að færa bendil í línu. Notið bilslá (space bar).

!       1                                2  3 4      5            6.1
!---------------------------------------+--+-+-+------------+----------
[.....]
BorLetterLIST                            03 N P brltrLST.prn DEVICE-01
[.....]