Main content
main
![Rafbókasafnið Rafbókasafnið](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/rafbokasafnid_0.jpg?itok=aTbpq2kY)
Rafbókasafnið hefur verið opnað
Rafbókasafnið hefur verið opnað á léninu http://rafbokasafnid.is / http://rafbókasafnið.is. Um er að ræða samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna og Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Markmið með Rafbókasafninu er að bjóða almenningi upp á aðgang að fjölbreyttu úrvali raf- og hljóðbóka. Flestar bækurnar í Rafbókasafninu eru á ensku en ráðgert er að í framtíðinni verði einnig mögulegt að fá lánað íslenskt efni í Rafbókasafninu. Bækurnar má lesa eða hlýða á í spjaldtölvum, farsímum, borðtölvum, í appi og á lesbrettum öðrum en Kindle.
Í fyrstu verður Rafbókasafnið aðeins í boði fyrir lánþega Borgarbókasafnsins, en er fram líða stundir mun öðrum almenningsbókasöfnum í Gegni standa til boða að ganga til liðs við Rafbókasafnið og bjóða sínum lánþegum upp á þjónustuna.
Rafbókasafnið byggir á Overdrive rafbókaveitunni sem býður bókasöfnum um allan heim samskonar þjónustu.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)