Main content
main
![Norræna Afríkustofnunin. The Nordic Africa Institute. Nordiska Afrikainstitutet](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/nai.png?itok=m44sE1wr)
Safnkostur Nordic Africa Institute á leitir.is
19.07.2018
Ísland á aðild að Norrænu Afríkustofnuninni (The Nordic Africa Institute, NAI) sem hefur aðsetur í Uppsölum í Svíþjóð. Stofnunin heldur úti rafrænu bókasafni þar sem safnað er bókum, greinum og tímaritum sem eru í opnum aðgangi. Þessi ritakostur hefur nú verið gerður aðgengilegur á leitir.is og er það von Landskerfis bókasafna að það megi vera almenningi til upplýsingar um málefni Afríku og fræðimönnum til gagns við rannsóknir.
Sjá frétt um þetta á vef NAI: http://nai.uu.se/news/articles/2018/03/29/133218/index.xml
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)