2

Main content

main

Nýtt krækjukerfi fyrir rafræn tímarit

Innleiðing SFX Classic krækjukerfisins er nú á lokastigi. Um er að ræða samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna hf. og Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum.

Landskerfi bókasafna leggur til krækjukerfið SFX Classic, Landsaðgangur og háskólabókasöfnin leggja til rafrænu tímaritaáskriftirnar sem nú eru aðgengilegar í krækjukerfinu.

Á vef Landsaðgangsins, hvar.is hefur verið sett upp krækjan Tímaritalisti A-Z (SFX). Nokkur háskólabókasöfn munu bjóða upp á sambærilega krækju á heimasíðu sinni, þar sem leita má samtímis í séráskriftum viðkomandi háskóla og áskriftum Landsaðgangs.

Nánari upplýsingar um SFX Classic eru á síðunni SFX krækjukerfi.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block