Main content
Fréttir
main
Eins og hefð er fyrir þá verður í vetur boðið upp á kynningar og námskeið fyrir starfsmenn aðildarsafna Gegnis og Sarps. Fyrir notendur Sarps er boðið upp á grunnnámskeið, námskeið í skráningu og...
Telma Rós Sigfúsdóttir sem verið hefur vefstjóri leitir.is um árabil og áður þjónustustjóri hjá Landskerfinu hefur nú hætt störfum þar sem hún er á leið í framhaldsnám. Geir Jón Karlsson hefur...
Vinsælasti titillinn hjá aðildarsöfnum Gegnis 2015 er Myndasögusyrpan með 23.317 útlán. Efni fyrir börn er sem fyrr vinsælast hvort sem litið er til allra útlána í Gegni eða til undirflokka eins...
Skýrsla stjórnar Rekstrarfélags Sarps sem flutt var á aðalfundi félagsins þann 30. júní 2016 er nú aðgengileg á vef félagsins.
Eftirtalin voru kosin í fulltrúaráð Sarps á fundinum: Anna Guðný Ásgeirsdóttir (formaður) og Anna Lísa Rúnarsdóttir frá Þjóðminjasafni Íslands, Anna María Urbancic og Dagný Heiðdal frá Listasafni Íslands, Gerður Róbertsdóttir frá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Haraldur Þór Egilsson frá Minjasafninu á Akureyri, Inga Jónsdóttir frá...
Kerfisvinnu er nú lokið á leitir.is og leitir.is/gegnir.
Opnað hefur verið aftur fyrir notendur.
Vegna kerfisvinnu verður leitir.is lokaður hluta úr degi þriðjudaginn 31. maí. Kerfið verður tekið niður kl. 8 að morgni og verður opnað aftur upp úr hádegi sama dag. Einhverjar truflanir geta orðið á vefnum fram eftir degi. Á meðan á kerfisvinnunni stendur bendum við á að nota starfsmannaaðgang Gegnis og hvar.is.
Geir Jón Karlsson hefur verið ráðinn í starf „verkefnastjóra – upplýsingatækni“ hjá Landskerfi bókasafna hf. og hefur hafið störf.
Hann hefur áralanga reynslu af innleiðingu, þjónustu og rekstri upplýsingatæknikerfa og starfaði síðast hjá Reykjavíkurborg en áður meðal annars hjá Landsteinum-Streng, Frjálsri fjölmiðlun og Hugviti. Í fyrstu mun Geir Jón hafa umsjón með leitir.is og er fram líða stundir fleiri verkefnum.
Aðalfundur Landskerfis bókasafna var haldinn 10. maí síðastliðinn. Skýrsla stjórnar Landskerfis bókasafna er nú aðgengileg á vefnum.
Á fundinn mættu fulltrúar rúmlega 80% hluthafa. Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum.
Fundargerð frá fundinum verður gerð aðgengileg á næstu dögum.
Nýr vefur Landskerfis bókasafna og Rekstarfélags Sarps opnaður 3. maí 2016.
Vinna við nýjan vefinn hefur staðið yfir frá síðasta...