Main content
main
Saga
Núverandi útgáfa Sarps, Sarpur 3.0, er sú þriðja í röðinni og var smíðuð í samvinnu við Þekkingu ehf. Fyrsta útgáfa kerfisins, Sarpur 1.0, var tekin í notkun 1998 og önnur útgáfan, Sarpur 2.0, árið 2002. Í framhaldi af því var Rekstrarfélag Sarps stofnað. Þjóðminjasafn Íslands smíðaði fyrstu og aðra útgáfuna í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit hf.
Sarpur 3.0 var tekinn í notkun 1. apríl 2011 en kerfið var þróað af Þekking-Tristran hf. Smíði Sarps 3.0 lauk 25. október 2012. Næstu árin fóru í lagfæra ýmsa agnúa á kerfinu en 22. desember 2015 var gengið frá formlegum verklokasamningi á milli Rekstrarfélags Sarps og Þekking-Tristran hf. Í framhaldi af verklokasamningi var samið við PES ehf. um þróun og viðhald kerfis og stóð það samstarf til 1. mars 2018. Á þeim tímapunkti færðist þróun og viðhalds Sarpur 3.0 yfir til Prógramm ehf. samkvæmt samningi þar um.
Sarpur 3.0 er veflægt kerfi og er opið starfsmönnum aðildarsafna Sarps. Aðgangur almennings í gegnum vefslóðina sarpur.is var opnaður með formlegum hætti 25. september 2013.
Árið 2014 hlaut Rekstrarfélag Sarps Íslensku safnaverðlaunin fyrir vefinn sarpur.is.