Main content
Fréttir
main
Rafgagnahópur var stofnaður til að þróa verklag við meðhöndlun rafræns efnis í Gegni og leitir.is. Helstu niðurstöður hópsins eru tillögur um breytingar á útliti og virkni leitir.is ásamt meðhöndlun lýsigagna. Stærsta breytingin er einn leitargluggi og endurhönnun á framsetningu upplýsinga í leitir.is sem þegar hafa verið virkjuð í leitir.is.
Gegnir hefur verið uppfærður í nýja útgáfu af Aleph kerfinu, útgáfu 22. Uppfærslan tók lengri tíma en ráð hafði verið fyrir gert en kerfið fór í rekstur í morgun föstudag.
Rukk, tilkynningar, vanskilalistar og útlánalistar verða keyrðir yfir helgina. Næstu daga verður áfram unnið að fínstillingu kerfisins í þeim tilgangi að ná fram hámarksafköstum þess.
Nýjustu fundargerðir Skráningaráðs eru nú konar á vefinn. Sjá krækjuna Skráningarráð til vinstri á síðunni.
Þessa dagana stendur yfir kerfisleg uppfærsla Gegnis í útgáfu 22. Bókasafnskerfið, þ.e.a.s. starfsmannaðgangur Gegnis, sjálfsafgreiðsluvélar bókasafnanna og leitarvefurinn gegnir.is eru lokuð á meðan á uppfærslunni stendur en kerfið mun verða opnað að nýju fimmtudaginn 22. maí. Það verður hægt að leita á leitir.is en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Þjónustur tengdar innskráningu verða óaðgengilegar, þ.e.a.s. innskráning, millisafnalán, frátektir og endurnýjanir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og...
Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 13. maí 2014. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 8 hluthafa sem eiga samanlagt 77,98% hlutafjár í félaginu.
Hér má nálgast skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár og fundargerð aðalfundar.
Í stjórn félagsins fyrir starfsárið 2014-2015 voru kjörin: Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir...
Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var í Þjóðarbókhlöðu 9. maí sögðu starfsmenn Landskerfis bókasafna frá vinnu við útgáfu 22 af Gegni og fóru yfir helstu nýjungar og tímasetningar varðandi innleiðinguna sem verður nú í maí.
Einnig var fjallað um gerð nýrra skýrslna um tölfræði vegna Gegnis, vefjanna leitir.is og gegnir.is og rafræns efnis.
Kynntar voru niðurstöður Rafgagnahóps sem sem stofnaður var til þess að skýra verklag við meðhöndlun rafræns efnis í Gegni og leitir.is. Helstu niðurstöður hópsins eru tillögur um...
Tölfræði fyrir Gegni vegna ársins 2013 er nú aðgengileg á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, sjá Talnagögn um árið 2013. Útlán drógust töluvert saman á milli áranna 2012 og 2013 eða um 4.7%. Þessi samdráttur hófst árið 2010 en fram að þeim tíma var aukning útlána á milli ára umtalsverð. Erfiðara er að túlka tölur um fjölgun eintaka og titla þar sem þessar tölur hækka alla jafnan á milli ára. Þó er ljóst að skráðum titlum heldur áfram að fjölga hlutfallslega meira en undanfarin ár á meðan að það dregur úr hlutfallslegri fjölgun eintaka....
Gjaldskrá Landskerfis bókasafna fyrir árið 2014 er nú aðgengileg hér á síðunni. Í ljósi góðrar afkomu hefur verið ákveðið að veita 3,5% afslátt af einingarverðum á árinu 2014.