Main content
Fréttir
main
Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var 24. maí síðastliðinn voru kynntar breytingar á meðhöndlun kennitalna í Gegni, sjá glærur.
Breytingarnar varða úthlutun notandanafna og lykilorða til lánþega vegna innskráningar á leitir.is og gegnir.is. Breytingarnar eru gerðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga lánþega.
Helstu atriði eru:
• | Lánþegar ættu helst ekki að nota kennitölu sem notandanafn við innskráningu á vefi |
• | Skylt |
Fundargerð Skráningaráðs Gegnis frá 71. fundi ráðsins sem haldinn var 12.desember síðastliðinn er nú aðgengileg á síðu skráningarráðs.
Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 24. maí 2013. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 9 hluthafa sem eiga samanlagt 84,14% hlutafjár í félaginu.
Hér má nálgast skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár og fundargerð aðalfundar.
Heimilisfang Landskerfis bókasafna er nú Katrínartún 2 (áður Höfðatún 2).
Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Starfsárið...
Skipað hefur verið í Rafgagnahóp sem hefur það hlutverk að móta framtíðarsýn varðandi aðgengi að rafrænum safnkosti. Í hópnum sitja Anna Sveinsdóttir, Birgir Björnsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Kristína Benedikts, Margrét Ásgeirsdóttir og Þóra Gylfadóttir auk starfsmanns Landskerfis bókasafna. Hópurinn verður kallaður saman til fyrsta fundar á næstu vikum.
Notendaráðstefna Aleflis 2013 verður haldin í fyrirlestarsal Landsbókasafns 24. maí kl 10 -12.
Vegna viðhaldsvinnu verður vefurinn leitir.is óaðgengilegur í um klukkustund á tímabilinu 22:00-24:00 í kvöld, 10. maí. Hægt verður að nota gegnir.is og hvar.is á meðan.
Vegna kerfisvinnu var Gegnir lokaður fimmtudaginn 25. apríl. Það var verið að endurlykla eða „indexera“ bókfræðigrunn Gegnis.
Breytingar í lyklun lúta fyrst og fremst að bættri leit í númerasviðum eins og ISSN, ISBN og öðrum minna notuðum númerasviðum. Einnig var tekið á ýmsum atriðum sem nýtast vel fyrir gæðastýringu á gögnunum.
Vegna kerfisvinnu verður starfsmannaaðgangur Gegnis og gegnir.is lokaður frá kl. 22:00 miðvikudagskvöldið 24. apríl og sumardaginn fyrsta 25. apríl. Á meðan á lokuninni stendur verður gegnir.is vísað yfir á leitir.is.
Hægt verður að leita á http://leitir.is á meðan á lokun Gegnis stendur en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Lokað verður fyrir innskráningu, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og stöðu eintaka. Leit í flipanum “Greinar í...