2

Main content

Fréttir

main

Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var 12. maí síðastliðinn fluttu starfsmenn á skrifstofu Landskerfisins nokkur erindi þar sem sagt var frá ýmsum nýjunum varðandi kerfisþróun.

  • Sigrún Hauksdóttir sagði frá nýjungum við tölfræðivinnslu Gegnis, erindið bar heitið Topplistar.
  • Telma Rós Sigfúsdóttir fjallaði um Leitartrix og nýjungar í leitir.is.
  • Síðast en ekki síst sögðu Telma Rós og Sigurður Trausti Traustason frá vinnu við að tengja gögn úr sarpur.is í leitir.is.

Fundargerð frá aðalfundi Landskerfis bókasafna hf. sem haldinn var 12. maí síðastliðinn hefur nú verið gerð aðgengileg á vef félagsins.

Fundargerð aðalfundar 2015

 

Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn 12. maí 2015. Störf fundarins voru með hefðbundnum hætti. Á fundinn mættu fulltrúar 9 hluthafa sem eiga samanlagt 85,69% hlutafjár í félaginu.

Hér má nálgast skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2014. Fundargerð verður birt á næstu dögum.

Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Í stjórn fyrir starfsárið 2015-2016 sitja: Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Karl...

Starfsmenn Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélags Sarps óska viðskiptavinum sínum gleðilegra páska. Skrifstofan verður lokuð yfir hátíðarnar en opnar aftur 7. apríl.

Í Fréttablaði dagsins í dag er birt auglýsing yfir vinsælustu skáldsögurnar á Grófarsafni 2014. Listinn sem þar er birtur byggir á topplistum útlána í Gegni fyrir árið 2014 sem er aðgengilegur á þjónustuvef Landskerfisins.

Þjónustupakkar voru uppfærðir í Gegni þriðjudaginn 23. mars. Hlutverk þjónustupakka er fyrst og fremst að lagfæra villur og auka öryggi kerfisins. Það þarf að uppfæra undirliggjandi kerfi og bæta við og breyta grunntöflum í kerfinu ásamt því taka í notkun nýja virkni, sjá nánar hér.

Vegna kerfisvinnu verður starfsmannaaðgangur Gegnis og gegnir.is lokaður frá kl. 22:00 mánudagskvöldið 23. mars og fram eftir degi þriðjudaginn 24. mars. Á meðan á lokuninni stendur verður gegnir.is vísað yfir á leitir.is.

Hægt verður að leita á leitir.is á meðan á lokun Gegnis stendur en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Lokað verður fyrir innskráningu, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og stöðu eintaka.

Þóra Gylfadóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur hóf störf hjá Landskerfum bókasafna þann 1. mars síðastliðinn. Hún mun sinna ýmsum verkefnum einkanlega á sviði rafræns safnkosts. Það er mikill fengur að því fyrir Landskerfið að fá Þóru til liðs við sig og hún er boðin innilega velkomin til starfa.

Frá því að vefurinn leitir.is var opnaður í nóvember 2011 hefur notkun hans vaxið jafnt og þétt. Flettingum á vefnum fjölgar og einnig notendum hans. Aukning milli áranna 2012/13 var 45,8%. Af því má draga þá ályktanir að notendum líki vefurinn og telji sig hafa mikið til hans að sækja.

Lesið um þetta og meira í skýrslunni Tölur um notkun leitir.is 2011-2014.