Main content
main
Skráningarráð
Hlutverk Skráningarráðs Gegnis er að fylgjast með og setja reglur um skráningu bókfræðiupplýsinga í Gegni með það að markmiði að tryggja gæði og samræmingu þeirra í kerfinu. Öllum sem skrá í Gegni ber að framfylgja mótaðri gæðastefnu og hlíta þeim reglum sem Skráningarráð setur. Allir skrásetjarar þurfa að skrá sig á póstlistann Vanda.
Ábendingum um villur í Gegni skal beina til ritstjóra Gegnis.
Skráningarráð Gegnis starfar á vegum Landskerfis bókasafna hf. sem skipar fjóra skráningarsérfræðinga í ráðið og setur því erindisbréf. Bókasafnsfræðingar tilnefndir af stjórn notendafélagsins Aleflis og Landsbókasafni eiga sæti í ráðinu.
Þann 6. júní 2023 var haldinn hugarflugsfundur um hlutverk og verkefni skráningarráðs Gegnis. Tilefnið var breytt vinnuumhverfi skrásetjara og annara sem sýsla með safnkost í nýjum Gegni (Alma) sem og breytingar í starfsumhverfi bókasafna. Landskerfi bókasafna stóð fyrir fundinum sem haldinn var Þjóðarbókhlöðu. Þátttakendum, sem voru tæplega fjörutíu talsins var skipt í fjóra hópa sem unnu með jafnmargar spurningar. Niðurstöður hópavinnunnar má finna hér.
Skráningarráð Gegnis, frá 2023 | |
---|---|
María Bjarkadóttir | Borgarbókasafn |
Sigríður Vilhjálmsdóttur | Háskólinn á Akureyri |
Sigurgeir Finnsson | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn |
Þorsteinn „Doddi“ Jónsson | Amtsbókasafnið á Akureyri, formaður |
Án atkvæðisréttar | |
Kristin Lilja Thorlacius Björnsdóttir, fagstjóri íslenskrar skráningar og bókfræðistjórnar | Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn |
Sigrún Hauksdóttir, starfsmaður | Landskerfi bókasafna |
Erindum um beitingu skráningarreglna skal beina til Skráningarráðs.
Samþykktir |
---|