2

Main content

Fréttir

main

Skráningarráð lætur sig RDA mál varða. Sjá umfjöllun um það mál í 88. fundargerð ráðsins á heimasíðu Skráningarráðs hér til vinstri á síðunni.

Fundargerðir skráningarráðs frá fundum í október - desember 2014 eru nú aðgengilegar á heimasvæði ráðsins undir flipanum Skráningarráð hér til vinstri á síðunni.

Aðildarsöfn Gegnis geta nú nálgast topplista útlána á þjónustuvef, þ.e.a.s. lista yfir þá titla sem voru oftast lánaðir út í Gegni á árinu 2013. Bæði er um að ræða lista sem taka til alls gagnagrunnsins en einnig lista sem eru flokkaðir eftir söfnum.
 

Senn líður að jólum og tímabært að huga að jólakveðjum. Starfsmenn Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélags Sarps óska samstarfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

Minnum á að skrifstofan verður lokuð 24. og 31. desember.




Þann 27.11.2014 varð vélarbilun í netbúnaði hýsingaraðila sem orsakaði stutt rekstrarrof í Gegni og á öllum vefjum sem Landskerfi bókasafna rekur. Svo óheppilega vildi til að á sama tíma varð bilun í útsendingu fjöldatölvupósts og því bárust tilkynningar frá okkur seint eða ekki til viðskiptavina. Unnið er að úrbótum til að koma í veg fyrir að svona tilvik muni endurtaka sig.

Á fræðslufundi skrásetjara Gegnis sem haldinn var 7. nóvember síðastliðinn var meðal annars fjallað um innleiðingu RDA skráningarreglnanna á Íslandi og notkun FRBR. Fundurinn var tekinn upp, nálgast má upptökurnar á síðu skráningarráðs.

Vegna kerfisvinnu verður Gegnir lokaður þriðjudaginn 4. nóvember frá kl. 7:30 – 8:00 að morgni.

Á fundi skráningarráðs þann 6. október urðu þau tíðindi að Rósa S. Jónsdóttir forstöðukona bókasafns Orkustofnunar var kjörin formaður ráðsins.

Þóra Sigurbjörnsdóttir sem verið hefur formaður skráningarráðs frá 18. desember 2003 mun starfa áfram með ráðinu.

Rósu er óskað velfarnaðar sem formaður skráningaráðs og Þóru eru þökkuð óeigingjörn störf í þágu Gegnis um langt árabil.

Á undanförnum vikum og mánuðum hafa verið stífar fundarsetur hjá skráningarráði Gegns. Þar hefur einkum verið unnið að gerð innleiðingaráætlunar fyrir RDA skráningarreglurnar. Áætluninni var dreift með fundargögnum á Landsfundi Upplýsingar sem haldinn var á Akureyri í byrjun október.

Nýjar fundargerðir skráningrráðs frá 78.-84. fundi þess eru aðgengilegar á heimasvæði ráðsins undir flipanum Skráningarráð hér til vinstri.