2

Main content

Fréttir

main

Gegnir er nú aðgengilegur að nýju eftir uppfærslu þjónustupakka. Öll kerfisvirkni bæði í Gegni og leitir.is er orðin eðlileg á nýjan leik.

Mikilvægt er að starfsmenn safna uppfæra biðlara (starfsmannaviðmót) á öllum tölvum þar sem Gegnir er uppsettur. Leiðbeiningar hafa verið sendar út á póstlista Landskerfsins.

Vegna kerfisvinnu verður starfsmannaaðgangur Gegnis og vefviðmótið gegnir.is lokað frá kl. 22:00 á mánudagskvöld 25. janúar og fram eftir degi þriðjudaginn 26. janúar. Á meðan á lokuninni stendur verður gegnir.is vísað yfir á leitir.is.

Hægt verður að leita á leitir.is á meðan á lokun Gegnis stendur en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Lokað verður fyrir innskráningu, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og stöðu eintaka....

Sauðfé í hátíðarbúningi

Landskerfi bókasafna og Rekstrarfélag Sarps óska viðskiptavinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakka samstarfið á árinu sem er að líða.

Skrifstofan verður að venju...

Nýtt útlit vefsins gegnir.is mun líta dagsins ljós um miðjan febrúar 2016. Nýi vefurinn er unninn í sama umhverfi og leitir.is og býður upp á fjölþætta leitar- og umsýslumöguleika. Hægt verður að ferðast á milli vefjanna gegnir.is og leitir.is með einföldum hætti og þannig leita ýmist aðeins í Gegni eða í öllum þeim fjölbreytta safnkosti sem er í leitir.is.

Í gær, 15.12.2015 bárust af því fréttir að áður boðuð kaup ProQuest á Ex Libris Group hefðu verið til lykta leidd. Stofnuð hefur verið ný rekstrareining innan ProQuest sem ber heitið Ex Libris, a ProQuest company og verður hún leidd af stjórneindateymi Ex Libris til margra ára. Ekki eru boðaðar neinar breytingar á vörum og þjónustu við þær.

Kynbundinn mismunur á lestri hefur verið mikið í umræðunni. Eitt sjónarhornið í þeim vangaveltum hlýtur að vera kynbundin útlán safnanna.

Undanfarin misseri hefur Landskerfi bókasafna unnið að því að kyngreina tölfræðina yfir útlán. Á þjónustuvef Landskerfis bókasafna hefur verið bætt við fjórum kyngreindum útlánaskýrslum undir liðnum „Árslokatölfræði 2014“.

Lesa má nánar um verkefnið hér.

Þjónustusamningur Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélag Sarps þar sem Landskerfið tekur að sér umsjón með daglegum rekstri Rekstrarfélagsins og menningarsögulega gagnasafnsins Sarps hefur verið endurnýjaður. Nýr samningur gildir til 31.8. 2019.

Þann 6. október síðastliðinn bárust þau tíðindi að ProQuest hyggðist kaupa Ex Libris af bandaríska fjárfestingarfélaginu Golden Gate Capital. Beðið er samþykkis bandarískra samkeppnisyfirvalda fyrir kaupunum en gangi þau eftir verður félagið rekið áfram undir heitinu Ex Libris, a ProQuest Company.

Dagana 28.-30. október stóð Landskerfið fyrir námskeiði í bókfræðiskráningu í Gegni. Hildur Gunnlaugsdóttir starfsmaður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns hafði umsjón með kennslunni. Alls sóttu níu starfsmenn aðildarsafna Gegnis námskeiðið. Væntanlega var hér um síðasta námskeiðið af þessum toga að ræða en á næstu skráningarnámskeiðum verður RDA skráningarreglunum fléttað inn í námsefnið.