2

Main content

Fréttir

main

Þjónustusamningur Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélag Sarps þar sem Landskerfið tekur að sér umsjón með daglegum rekstri Rekstrarfélagsins og menningarsögulega gagnasafnsins Sarps hefur verið endurnýjaður. Nýr samningur gildir til 31.8. 2019.

Þann 6. október síðastliðinn bárust þau tíðindi að ProQuest hyggðist kaupa Ex Libris af bandaríska fjárfestingarfélaginu Golden Gate Capital. Beðið er samþykkis bandarískra samkeppnisyfirvalda fyrir kaupunum en gangi þau eftir verður félagið rekið áfram undir heitinu Ex Libris, a ProQuest Company.

Dagana 28.-30. október stóð Landskerfið fyrir námskeiði í bókfræðiskráningu í Gegni. Hildur Gunnlaugsdóttir starfsmaður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns hafði umsjón með kennslunni. Alls sóttu níu starfsmenn aðildarsafna Gegnis námskeiðið. Væntanlega var hér um síðasta námskeiðið af þessum toga að ræða en á næstu skráningarnámskeiðum verður RDA skráningarreglunum fléttað inn í námsefnið.

Grímsnes- og Grafningshreppur er nýr hluthafi í Landskerfi bókasafna og hefur jafnframt gengið frá samningi vegna aðildar að Gegni. Sveitarfélagið rekur í dag eitt bókasafn Kerhólsskóla.

Fundargerðir skráningarráðs frá fundum í febrúar - júní 2015 eru nú aðgengilegar á heimasvæði ráðsins undir Skráningarráð.

Greinargerðir um söfnun tölulegra upplýsinga úr bókfræðigrunni Gegnis fyrir árin 2013 og 2014 eru nú tilbúnar. Vegna breytinga á verklagi varð dráttur á birtingu greinargerðar fyrir 2013. Þetta eru sambærilegar samantektir og birtar hafa verið undanfarin ár undir heitinu „Tölur úr bókfræðigrunni Gegnis : greinargerð um söfnun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga til ársloka 20XX”.

Myndin sýnir hve margar bókfræðifærslur bættust við árlega á tímabilinu sem þetta tölfræðiverkefni tekur til. Talsverður munur er á fjölda milli ára. Vélvirk...

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið á vegum Landskerfis bókasafna veturinn 2015 – 2016.

Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið í Gegni, Sarpi og leitir.is, sjá nánar námskeiðsáætlun ásamt lýsingum á námskeiðunum.

Hægt er að skrá sig á námskeiðin á vef Landskerfis bókasafna, Fræðsla - Skráning.

Skrifstofa Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélags Sarps lokar kl. 13 í dag 19. júní, starfsfólk fagnar 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.

Gegnir hefur opnað að nýju eftir að hafa verið lokaður vegna kerfisvinnu þjóðhátíðardaginn 17. júní. Að þessu sinni var verið að lykla bókfræðigrunn og aðlaga kerfið til að meðhöndla nýjar bókfræðilegar skráningarreglur sem kallast Resource Description and Access (RDA).