2

Main content

Fréttir

main

Uppfærslu þjónustupakka á Gegnir er lokið. Búið er að opna vefinn gegnir.is. Leiðbeiningar hafa verið sendar út á póstlista Landskerfisins. Þær verða einnig aðgengilegar á þjónustuvef. Mikilvægt er að starfsmenn bókasafna uppfæri biðlara í samræmi við leiðbeiningarnar.

Vegna uppsetningu þjónustupakka verður Gegnir lokaður framan af degi næstkomandi mánudag, 11. maí. Þessi lokun nær bæði til starfsmannaaðgangs Gegnis og gegnir.is.

Nauðsynlegt er að setja upp nýja þjónustupakka til að tryggja gæði og hámarks skilvirkni bókasafnskerfisins.

Nánari upplýsingar um þjónustupakkana.

Notendaráðstefna Aleflis verður haldin föstudaginn 8. maí 2009 frá kl. 13.00 – 16.00, í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu. Að þessu sinni verður ráðstefnan tekin upp. Upptakan verður komin á vefinn um kl. 18.00 þann 8. maí og mun verða aðgengileg amk. í ár.

Þann 21. apríl 2009 var haldinn fræðslufundur skrásetjara, þar sem fjallað var um nýjungar tengdar skráningu og efnisorðum í Gegni. Skrásetjarar eru hvattir til þess að kynna sér glærur frá fundinum á síðu skráningarráðs.

Á fundi skrásetjara sem haldinn var í Þjóðarbókhlöðu í lok árs 2008 var ákveðið að endurskoða þyrfti vinnubrögð við skráningu og varðveislu á rafrænu efni. Í kjölfarið var auglýst eftir þátttakendum í tvo vinnuhópa þar sem annars vegar yrði fjallað um skráningu á rafrænu efni og hins vegar varðveislu á rafrænu efni. Báðir þessir hópar hafa nú tekið til starfa. Nánar má lesa sér til um vinnu hópanna á krækjunni Faghópar.

Námskeið um notkun á útlánaþætti Gegnis verður haldið í húsakynnum Landskerfis bókasafna miðvikudaginn 15. apríl kl. 9.00 - 12.00. Skráning fer fram á heimasíðu Landkerfis bókasafna, www.landskerfi.is undir Fræðsla.

Vegna kerfisvinnu getur samband við Gegni rofnað í stutta stund á tímabilinu kl. 22-22.30 fimmtudagskvöldið 2. apríl 2009. Þessa mun aðeins verða vart hjá notendum vefgáttar gegnir.is, enda bókasöfnin sjálf lokuð á þessum tíma.

Vegna kerfisvinnu verður Gegnir lokaður helgina 20. - 22. mars næstkomandi. Þessi lokun nær bæði til starfsmannaaðgangs Gegnis og gegnir.is.

Vakin er athygli á því að starfsáætlun Landskerfis bókasafna fyrir árið 2009 hefur nú verið sett á heimasíðu félagsins.