Main content
main
Tiltekt í vanskilum
Tiltekt í vanskilum
Eitt af mikilvægum verkefnum bókasafnanna er að hreinsa upp gömul vanskil.
Bréf send til bókasafnanna:
Algengar spurningar:
Hvers vegna þarf að hreinsa upp gömul vanskil?
Útlánaupplýsingar yfir gömul vanskil verða ekki fluttar yfir í nýtt kerfi. Hins vegar verða öll eintök flutt yfir í nýtt kerfi og þá lítur út fyrir að löngu týnd eintök séu komin upp í hillu. Það gefur lánþegum ranga mynd af safnkostinum og skapar óþarfa vinnu og vandræði fyrir starfsmenn sem eyða dýrmætum tíma í að leita að eintökum sem alls ekki eru til á safninu.
Getur Landskerfi bókasafna ekki gert þetta vélrænt?
Nei, því miður þá er það ekki hægt. Þessi vinna verður að gerast handvirkt á hverju safni fyrir sig.
Hvar get ég nálgast lista yfir gömul vanskil í mínu safni?
Á hverjum sunnudegi verður til ný útgáfa af vanskilalistum yfir gögn sem eru komin meira en 1 ár frá skiladegi. Listarnir eru aðgengilegir undir „Skráarlisti“ í bleika flipanum í útlánaþætti. Heiti skráarinnar er SAFNKÓÐI_vanskil_1ar.
- Dæmi: Bókasafn Seltjarnarness sækir listann sem heitir SELAA_vanskil_1ar.
Sjá nánari leiðbeiningar á þjónustuvef Landskerfis bókasafna undir Gegnir > Listar og rukk > Prenta út lista yfir útlán, vanskil og rukk (https://www.landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/listar-og-rukk/prenta-ut-lista-yfir-utlan-vanskil-og-rukk)
Hvernig eyði ég gömlum vanskilum?
Ef ekki gengur að innheimta gömul vanskil frá lánþegum, þá þarf að eyða eintakinu alveg út úr kerfinu.
- Skila eintakinu af korti lánþegans
- Gera ráðstafanir á korti lánþegans, t.d. varðandi sektir eða bætur fyrir eintakið (ef við á)
- Fara yfir í skráningarþátt og eyða eintakinu alveg út úr Gegni
- sjá leiðbeiningar: https://www.landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/skraning-og-eintok/eyda-eintaki - Meta hvort bókasafnið þurfi að kaupa annað eintak í staðinn
Athugið sérstaklega:
Það er ekki nóg að merkja útlánið sem "Týnt" eða "Talið skilað". Eintakið telst samt vera í vanskilum ef þetta er gert!