Main content
main
Starfsmenn og lánþegar
30.09.2021
Starfsmannaskrá og lánþegaskrá
Í Alma kerfinu eru starfsmenn og lánþegar í einni og sömu skránni. Þeim eru svo gefin réttindi eftir því sem við á; almennir lánþegar fá lánþegaréttindi en starfsmenn bókasafnanna fá að auki réttindi til að vinna í kerfinu.
Til þess að starfsmenn flytjist yfir í Alma kerfið þurfa þeir að vera virkir í sínu safni í Gegni (Aleph). Það þarf að passa bæði upp á að safn og gildistími skírteinis sé rétt. Sjá nánar leiðbeiningar:
- Nýr lánþegi á safni: https://landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/lanthegar/nyr-lanthegi-safni
- Endurnýjun gildistíma: https://landskerfi.is/leidbeiningar/gegnir/lanthegar/endurnyjun-lanthegaskirteina-og-breyting-lanthegastodu
Það er mjög mikilvægt að yfirfara starfsmennina strax, ekki seinna en föstudaginn 8. október.
Ef starfsmenn fara ekki yfir í Alma kerfið núna í næstu gagnahleðslu (okt. 2021) getur það valdið vandræðum og aukinni vinnu bæði hjá söfnunum og Landskerfi bókasafna.