Main content
Fréttir
main
Innleiðing SFX Classic krækjukerfisins er nú á lokastigi. Um er að ræða samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna hf. og Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum.
Landskerfi bókasafna leggur til krækjukerfið SFX Classic, Landsaðgangur og háskólabókasöfnin leggja til rafrænu tímaritaáskriftirnar sem nú eru aðgengilegar í krækjukerfinu.
Á vef Landsaðgangsins, hvar.is hefur verið sett upp krækjan Tímaritalisti A-Z (SFX). Nokkur háskólabókasöfn munu bjóða upp á sambærilega krækju á heimasíðu sinni, þar sem leita má samtímis í...
Í síðasta tölublaði Fregna (34. árg.-2. tbl) var birt greinin Landskerfi bókasafna hf. - pistill í lok sumars. Greinin var skrifuð í lok ágúst 2009.
Hægt er að lesa allan Fregni á heimsíðu Upplýsingar.
Athygli skrásetjara Gegnis er vakin á því að nú er hægt að veiða bókfræðifærslur ókeypis úr norska gagngrunninum Bibsys. Leitað er í biðlara Gegnis og færslurnar fluttar beint yfir í skráningarþátt. Leiðbeiningar um flutning á færslum er að finna á þjónustuvef Landskerfis bókasafna.
Fertugasta og sjöunda fundargerð skráningaráðs, frá 10. júní er komin á síðu skráningarráðs.
Nýtt skráningarráð hefur verið skipað og mun það sitja til hausins 2010. Í ráðinu sitja Þóra Sigurbjörnsdóttir frá Borgarbókasafni Reykjavíkur, Anna Sveinsdóttir frá Bókasafni Náttúrufræðistofnunar, Gunnhildur Loftsdóttir frá Bóksafni Seltjarnarness auk Sigrúnar Jónu Marelsdóttur frá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Nýtt skráningarráð er boðið velkomið til starfa.
Landskerfi bókasafna kynnir nýjungar í miðlun kennslu.
Kennsluefni hefur verið tekið upp og gert aðgengilegt á margmiðlunarformi á þjónustuvef Landskerfis bókasafna. Með þessum hætti geta starfsmenn bókasafna bætt við eða rifjað upp þekkingu sína á Gegni hvar og hvenær sem er. Einnig ætti þessi nýjung að geta komið nýjum starfsmönnum bókasafna að góðum notum. Skjáupptökurnar eru stuttar, aðgengilegar og sýna á einfaldan hátt ýmsar aðgerðir í Gegni.
Til að byrja með tekur kennsluefnið til aðgerða í útlánaþætti Gegnis en smám...
Hægt er að nálgast ýmsar nýjar og/eða endurbættar leiðbeiningar á þjónustuvef Landskerfis bókasafna, þar með taldar:
- Vélræn innkeyrsla á nemendalistum skóla.
- Leitargluggi til að bjóða upp á leit í gegnir.is beint af heimasíðu safns.
- Mínar síður á ensku - notendasnið fyrir erlenda lánþega.
- Vinnureglur um skráningu birgja í aðfangaþætti.
Tekin hefur verið saman greinargerð um söfnun tölulegra upplýsinga úr bókfræðigrunni Gegnis fram til loka árs 2008. Tölfræðin tekur til heildarskráningar í bókfræðigrunninn án tillits til einstakra aðildarsafna.
Greinargerðin er afrakstur samstarfs Landsbókasafns og Landskerfis bókasafna. Hún var unnin samkvæmt verkáætlun um gæðamál Gegnis á árinu 2009.
Skýrsla stjórnar Landskerfis bókasafna hf. lögð fram á aðalfundi 4. júní 2009, auk fundargerðar, hefur nú verið gerð aðgengileg á heimasíðunni.