Main content
Fréttir
main
Tölfræði fyrir Gegni vegna ársins 2015 er nú aðgengileg á þjónustuvef Landskerfis bókasafna.
Gildum lánþegum fækkaði nokkuð á milli ára sem má fyrst og fremst rekja til kerfislegra aðgerða...
Nýr veflægur aðgangur að Gegni hefur verið opnaður á slóðinni leitir.is/Gegnir. Einnig er hægt að komast á vefinn með því að slá inn gegnir.is upp á gamla mátann. Nýi vefurinn er gerður í sama umhverfi og leitir.is en hann hefur eigið útlit og á honum er aðeins leitað í safnkosti Gegnis.
Settar hafa verið saman vefupptökur um notkunarmöguleika á nýja vefnum:
• | Örstutt um |
Íslandsbanki kom færandi hendi í dag og færði okkur köku í tilefni þess að félagið er komið á lista CreditInfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2015.
Landskerfi bókasafna hf. er á lista sem Creditinfo hefur tekið saman yfir framúrskarandi fyrirtæki 2015.
Það er mikill heiður fyrir Landskerfið að vera í hópi þeirra 1,9% fyrirtækja sem uppfylla kröfur Creditinfo um framúrskarandi rekstur.
Í ár stóðust 682 fyrirtæki styrkleikamat Creditinfo og teljast vera Framúrskarandi fyrirtæki 2015. Landskerfið er í 510 sæti á listanum...
Ákveðið hefur verið að opna nýtt útlit gegnir.is 15. febrúar næstkomandi. Frá og með þeim tíma verður notendum sem fara inn á slóðina gegnir.is vísað yfir í nýja útlitið.
Nýi vefurinn er unninn í sama umhverfi og leitir.is og býður upp á fjölþætta leitar- og umsýslumöguleika. Hægt verður að ferðast á milli leitir.is og nýja gegnir.is með einföldum hætti og þannig leita ýmist aðeins í Gegni eða í öllum þeim fjölbreytta safnkosti sem er í leitir.is.
Sjá nánar í stuttri
...
Gegnir er nú aðgengilegur að nýju eftir uppfærslu þjónustupakka. Öll kerfisvirkni bæði í Gegni og leitir.is er orðin eðlileg á nýjan leik.
Mikilvægt er að starfsmenn safna uppfæra biðlara (starfsmannaviðmót) á öllum tölvum þar sem Gegnir er uppsettur. Leiðbeiningar hafa verið sendar út á póstlista Landskerfsins.
Vegna kerfisvinnu verður starfsmannaaðgangur Gegnis og vefviðmótið gegnir.is lokað frá kl. 22:00 á mánudagskvöld 25. janúar og fram eftir degi þriðjudaginn 26. janúar. Á meðan á lokuninni stendur verður gegnir.is vísað yfir á leitir.is.
Hægt verður að leita á leitir.is á meðan á lokun Gegnis stendur en upplýsingar og þjónustur verða takmarkaðar. Lokað verður fyrir innskráningu, millisafnalán og frátektir. Einnig verður ekki mögulegt að sjá upplýsingar um staðsetningu og stöðu eintaka....
Nýtt útlit vefsins gegnir.is mun líta dagsins ljós um miðjan febrúar 2016. Nýi vefurinn er unninn í sama umhverfi og leitir.is og býður upp á fjölþætta leitar- og umsýslumöguleika. Hægt verður að ferðast á milli vefjanna gegnir.is og leitir.is með einföldum hætti og þannig leita ýmist aðeins í Gegni eða í öllum þeim fjölbreytta safnkosti sem er í leitir.is.
Landskerfi bókasafna og Rekstrarfélag Sarps óska viðskiptavinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakka samstarfið á árinu sem er að líða.
Skrifstofan verður að venju...