2

Main content

Fréttir

main

Í dag héldu skráningarráð Gegnis og Landskerfi bókasafna fund með stjórnendum bókasafna til að kynna þeim stöðu bókfræðilegra upplýsinga í Gegni.

Eftirfarandi erindi voru haldin:

  • Þóra Sigurbjörnsdóttir: Setning fundarins
  • Sigrún Hauksdóttir: Bókfræðigrunnur Gegnis, fjöregg safnanna
  • Hildur Gunnlaugsdóttir: Skráning í Gegni
  • Harpa Rós Jónsdóttir: Leitir og lyklun - ekki er allt sem sýnist
  • Sigrún Hauksdóttir: Staða mála – uppbygging bókfræðigrunns og nafnmyndaskrár
  • Ragna
  • ...

Nú liggur skráningarhandbók Gegnis fyrir í veftæku formi. Í tilkynningu frá ritstjórn hennar segir: "Handbók skrásetjara Gegnis er nú aðgengileg á slóðinni http://hask.bok.hi.is. Handbókin birtist eingöngu á vef. Efninu er skipað í fjóra meginkafla – um kerfið, marksniðið, skráningarreglur og hjálpargögn. Handbókin verður í stöðugri þróun og efni birt jafnóðum og ritstjórn hefur gengið frá því. Líta ber á þessa fyrstu gerð sem frumdrög og tilraunaútgáfu. ( . . . ) Leiðréttingar eru vel þegnar...

Landskerfi bókasafna hefur áður kynnt skólabókavörðum þann möguleika að lánþegaréttindi fyrir alla nemendur skólans séu mynduð vélrænt í kerfinu í einu lagi. Nú hefur tilraun verið gerð með þetta fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ, og var tekið við gögnum í Excelskrá sem dregin var út úr nemendakerfinu Innu. Allt bendir til að þessi flutningur hafi tekist eins og til var ætlast og ættu þá aðrir skólar að geta fetað í fótspor FG hvað þetta varðar. Vonir standa til að mikil vinna sparist þegar nemendum eru veitt lánþegaréttindi með þessum...

Nú hafa allir vefnotendur aðgang að upplýsingum um notkun á vefviðmóti Gegnis. Hægt er að nálgast þær með því að smella á krækju hægra megin á vef Landskerfis bókasafna, þar sem stendur Vefmæling á Gegni. Þarna eru heimsóknir á vefinn greindar eftir mánuðum, löndum, dögum og fleiri atriðum. Hér má finna skýringar á helstu atriðum vefmælingarinnar.

Sú mikla aukning sem verður á notkun Gegnis haustið 2004 skýrist bæði af því að þá var sumarleyfum lokið og því að flest þeirra mörgu safna sem bættust við kerfið um vorið voru komin með...

Lokun Gegnis á sunnudaginn var stafaði af því var unnið að því að rjúfa tengsl á milli greinifærslna og eintaksfærslna, en það felur í sér að svonefndum ANA-linkum var breytt í UP-linka. Fyrir breytinguna héngu öll eintök tímarits á hverri greinifærslu þess tímarits. Ef leitað var t.d. að ákveðinni grein í Tímariti Máls og menningar birtist greinifærslan ásamt öllum eintökum þess rits í öllum söfnum. Eftir breytinguna birtist einungis greinifærslan en síðan er hægt að velja móðurfærsluna til að sjá staðsetningu. Eintökin tengjast...

Vegna viðhaldsvinnu er Gegnir lokaður til klukkan 7 á mánudagsmorgunn, 10. janúar 2004. Biðjumst við velvirðingar á því.

Við höfum nú tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í Gegni á árinu 2004. Þetta er fyrsta heila árið sem kerfið hefur verið í notkun en við minnum á að í apríl bættust um hundrað bókasöfn við kerfið, þar á meðal mörg almenningsbókasöfn og það eru einmitt þau sem hafa langflest útlán. Í heild voru rúmlega fimmtán hundruð þúsund útlán skráð í kerfið á árinu. Útlánatölurnar bera með sér
að börn og unglingar eru iðin við að sækja sér lesningu á bókasöfnin, en ekki vekur síður athygli að sjö af tíu útlánahæstu íslensku...

Skrifstofa Landskerfis bókasafna verður lokuð 24. og 31. desember. Ef starfsmenn bókasafna ná ekki sambandi við Gegni fyrir hádegi þessa daga, má gera okkur viðvart í vaktsíma.

Þann 23. nóvember 2004 lauk aðgerðum starfsmanna Ex Libris í Köln og Ísrael til að ráða bót á þeim seinagangi sem hafði hrjáð kerfið í nokkra mánuði. Mælingar okkar sýna að svartími kerfisins er almennt betri og í sumum tilvikum margfalt betri en áður var. Notendur kerfisins á bókasöfnum hafa meðal annars tekið eftir að uppfletting í lánþegaskrá er orðin þægilegri en áður, og flestar uppflettingar í vefviðmóti Gegnis taka nú um eða innan við sekúndu við meðalálag. Þegar mikið gagnamagn er sótt er svartíminn að vísu lengri, en þó er hann mun...